RUV - 电视节目表 — 正在直播
查看数千个免费频道正在播出的节目。
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni. Styrktaræfingar sitjandi á stól. Gott að hafa prik, eða tímarit til að nota við æfingarnar.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1999. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Illugi Jökulsson. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason. Í þessum úrslitaþætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Sverrir Guðmundsson, Arnar Þór Stefánsson og Hjalti Snær Ægisson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Fjalar Hauksson, Inga Þóra Ingvarsdóttir og Jón Árni Helgason.
Nokkrar hugrakkar manneskjur lesa upp úr dagbókum sínum frá unglingsárunum og deila með okkur dýpstu leyndarmálum ungdómsins, þegar allt er upp á líf og dauða og bóla á enninu er alvarlegri en efnahagshrun.
Þáttaröð frá 1991 um sögu íslenskrar dægurtónlistar. Umsjón: Helgi Pétursson og Jónatan Garðarsson. Dagskrárgerð: Tage Ammendrup.
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Leikföngin í Háaloftsbæ lifna við og breyta hversdagslegum hlutum í stórskemmtilegar uppfinningar. Krílin eru nefnilega snillingar í að nota ímyndunaraflið og um leið hvetja börn til þess að skapa og prófa sig áfram.
Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Þáttaröð um ungt og áhugavert fólk. Skyggnst er inn í líf einnar persónu hverju sinni og henni fylgt eftir í daglegu lífi sínu. Umsjónarmaður er Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla er í höndum Eiríks I. Böðvarssonar. Við kynnumst knattspyrnulífinu hjá Gylfa Þór Sigurðssyni sem leikur með enska úrvaldsdeildarliðinu Tottenham. Ragnhildur Steinunn ræðir við Gylfa um lífið utan fótboltans og framtíð hans hjá Tottenham.
Vikinglottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Dönsk leikin þáttaröð frá 2024. Allsherjarrýming stendur yfir í Danmörku vegna hækkandi sjávarborðs og þjóðin býr sig undir að yfirgefa heimili sín. Menntaskólaneminn Laura stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun: á hún að fylgja móður sinni, föður eða kærastanum sem hún elskar? Aðalhlutverk: Amaryllis April Maltha August, Albert Rudbeck Lindhardt og Nikolaj Lie Kaas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Danskir heimildarþættir frá 2026 um svik og spillingu í listaheiminum. Svissneskur listaverkasali og rússneskur ólígarki byggja upp eitt stærsta listaverkasafn heims. Þegar samstarf þeirra snýst upp í andhverfu sína skekur það listaheiminn allan. Leikstjóri: Andreas Dalsgaard.
Þriðja og síðasta þáttaröð þessara sannsögulegu dönsku þátta. Árið er 1968 og þrátt fyrir velgengni carmenrúllanna á heimsvísu er fyrirtækið í fjárhagsvandræðum. Axel þarf að taka stórar ákvarðanir til að bjarga fyrirtækinu, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir alla sem standa honum nærri. Aðalhlutverk: Morten Hee Andersen, Maria Rossing, Lars Ranthe og Nicolai Jørgensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Helgi Seljan, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni. Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 2000. Spyrill: Logi Bergmann Eiðsson. Dómari og spurningahöfundur: Ólína Þorvarðardóttir. Stigavörður: Þóra Arnórsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason. Í þessum þætti mætast lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Menntaskólans við Sund. Lið Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi skipa Andrés Björgvin Böðvarsson, Ómar Freyr Sigurbjörnsson og Lárus Viðar Lárusson. Lið Menntaskólans við Sund skipa Jón Atli Kjartansson, Jón Trausti Reynisson og Ásbjörn Jónasson.
Danskir heimildarþættir frá 2025. Anne Hjernøe og Anders Agger heimsækja Bútan, lítið búddískt ríki í suðausturhluta Himalajafjalla. Þar eru hamingja, vellíðan og menningargildi höfð í fyrirrúmi fremur en hagvöxtur.
Skemmtiþáttur frá 2019 um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV. Keppendur í þessum þætti eru Kamilla Einarsdóttir, Júlía Margrét Eindarsdóttir, Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og María Hjálmtýsdóttir.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson. Í Landanum í kvöld ætlum við að ferðast með hjálp sýndarveruleika, við kaupum okkur fisk í sjálfssala á Tálknafirði, við förum ríðandi um Njáluslóðir og við skoðum hlaðin hús á Austurlandi.
Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.
Stuttir þættir þar sem við kynnumst merkiskonum mannkynssögunnar. Sumar eru frægar, aðrar eru óþekktar en allar eru þær töffarar og eldhugar.
Ofurkraftar náttúrunnar lifna við! Sprenghlægileg og fróðleg þáttaröð fyrir krakka sem sýnir undur dýranna og hvers vegna við ættum að vernda heiminn þeirra.
Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
Jóga fyrir alla krakka í ævintýraheimi með dýrum og náttúru. Ævintýrajóga hvetur börn til hreyfingar og að vera meðvituð um líkama sinn og líðan. Það gefur þeim verkfæri sem auðveldar þeim að líða vel í eigin líkama og takast á við daglegt líf. Jógakennari: Þóra Rós Guðbjartsdóttir. Framleiðsla: Erla Hrund Hafsteinsdóttir. Fílinn er stórskemmtilegt dýr og hreyfir sig svo mikið, við lærum að elska fílinn af því að hann kennir okkur svolítið mikilvægt
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon. Í þessum þætti elda Ylfa og Máni gómsæta hamborgara úr nautakjöti og sojakjöti fyrir grænmetisætur. Síðan búa þau til mjög einfalda kokteilsósu. Hamborgarar 1 Grænmetisborgari 1 Hamborgari úr nautakjöti 1-2 msk olía á pönnu 1 tsk hamborgararkrydd Sneið ostur Settu hamborgarann á heita pönnuna, kryddaðu með hamborgarakryddi og steiktu á báðum hliðum þar til hamborgarinn er orðinn dökkur á lit. Settu ostsneið ofan á og láttu ostinn bráðna. Kokteilsósa 2 msk majones (má vera vegan majones), 1 msk tómatsósa og hræra vel saman. Skerðu niður sneiðar af: Gúrku, tómat og káli. Settu sósuna á hamborgarabrauðið, síðan hamborgarann og loks grænmeti að eigin vali.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Skemmtiþáttur um tungumálið á reiprennandi íslensku. Við höldum áfram að uppgötva nýjar hliðar á íslenskunni, þessu sérviskulega og kröftuga máli. Umsjón: Brynja Þorgeirsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir. Álitsgjafar þáttarins, Kolfinna Nikulásdóttir og Atli Már Steinarsson, kryfja menningarfyrirbærið Kanye West. Við kynnumst tónlistarmanninum Hafsteini Þráinssyni sem er maður margra hatta. Hann er mjög virkur í gerð kvikmyndatónlistar og segir okkur allt um það. Hafsteinn frumflytur lag í þættinum sem hann gefur út undir listamannsnafninu Ceasetone. Grínistarnir og glaumgosarnir Sandra Barilli og Jóhann Alfreð koma í spjall, meðmæli og spurningakeppni. Þau segja okkur frá karókíkeppni sem þau standa fyrir á næstunni.
Norskir heimildarþættir frá 2025. Øystein „Pølsa“ Pettersen, fyrrverandi atvinnumaður á gönguskíðum, setur saman lið ungmenna með fötlun af ólíku tagi en á það sameiginlegt að hafa enga reynslu af skíðum. Markmiðið er að þjálfa hópinn á einungis tíu mánuðum til að keppa á heimsmeistaramótinu á gönguskíðum í Þrándheimi.
Bresk spennuþáttaröð um Lexie Noble sem lifir friðsælu lífi í úthverfi Edinborgar, grunlaus um að eiginmaður hennar sér um að þvo peninga fyrir alræmdan glæpaforingja. Aðalhlutverk: Morven Christie, Peter Mullan og Prasanna Puwanarajah. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára. Karen er boðið í spennandi óvissuferð út fyrir bæinn. Hún er óörugg yfir því hvað sé í vændum en endar á að fara alla leið í gleðskapnum og rúmlega það.
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.